1) Ótrúlegt ferðalag lunda frá Napólí - Skáldsagan fer fram í tveimur borgum: Napólí á Ítalíu; og Reykjavík á Íslandi. Valentino Voto, klár ítalskur náungi, er óánægður og leiður á lífinu. þegar hann reynir að klára doktorsrannsóknina sína í menningarlegri mannfræði Þá rekst hann á dularfulla íslensku konu, Guðrúnu. Atburðirnir sem fylgdu Þar á eftir breyttu lífi hans til frambúðar: óútskýrðir atburðir, forvitnilegir draumar, dulræn og heiðin trú, álfar og aðrar goðsagnakenndar verur, vetrarnæturlandslag og norðurljós í norðri... Er Guðrún virkilega kona drauma hans eða draugur? 2) Aftur til þúle - Árið 168 fyrir Krist sigruðu hersveitir Rómverja Makedóníu og enduðu Þar með kongungsveldi Antigona í hinu Þriðja Makedóníustríði. Appolóníus var einn 1.000 akkeskra aðalsmanna sem voru fluttir til Rómar sem gíslar. Örlygsstaðabardagi, stærsti bardagi sem háður hefur verið á íslenskri grundu, átti sér stað 21. ágúst 1238. Gissur þorvaldsson, íslenskur miðaldahöfðingi af ætt Haukdæla, fór með sigur af hólmi eftir stuttan bardaga. Valentínó Votó ákveður að koma aftur til Íslands með nýjum vini sínum, Markó. Hann langar að vita að hve miklu leyti fyrsta ferð hans til Þessarar eyjar átti sér einungis stað í ímyndun hans. Hvað eiga Appolóníus, Gissur og Valentínó sameiginlegt? Hvernig eru sögutímabil Þeirra tengd? Og er Guðrún, platónskur elskhugi Valentínós til í alvörunni? Allt virðist hverfast um Fenri, hinn tröllaukna úlf Norrænnar goðafræði. 3) Djöfullegt kraftaverk Vesturbæjar - Valentínó Votó og vinur hans Markó Oddur ákveða að eyða kvöldinu á skemmtistað í Reykjavík. Markó hegðar sér undarlega og er nærri óÞekkjanlegur. En hvað mun gerast seinna í einbýlishúsinu hans í Suðurgötu? Hvers vegna svarar Lena unnusta hans ekki í símann? Haustið er á leiðinni til eyjarinnar, færandi með sér andrúmsloft hnignunarinnar, og "djöfullegt kraftaverk" er um Það bil að setja óbeygjanlegan frið Vesturbæjarins úr skorðum. Valentínó dregst inn í hvirfilbyl óvæginna ráðagerða sem munu flækja hann í sjö Þúsund ára gamla dulspekisiði: stundum kemur hið illa úr fortíðinni.